Hallo hallo!
Vá hvað ég saknaði ykkar!!!!ER hér komin heim úr nettri ferð til Þýskalands! :) Alveg heví kremað stuð... heheh!
Synti til verðlauna á þessu frábæra móti. 2 gull, 1 silfur og 1 brons! Plús 2 bikarar fyrir boðsund. Ekki alslæmt. Reyndar rosalega erfið laug. Vatnið þungt og sona... Þýðir ekkert að kvarta þetta er synt og búið.
Ég sé að vinsældir síðunnar hafa dvínað örlítið í fjarveru minni en engu að síðu er enn fólk sem leggur leið sína hingað og er ég afar þakklát fyrir það! Það koma myndir úr ferðinni á síðuna en þið þurfið bara að bíða róleg... MUSE ER Á MORGUN!!!!! MUSE MUSE MUSE MUSE MUSE MUSEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEE!
Og vil ég nýta tækifærið og þakka förunautum mínum fyrir frábæra ferð. Þýska fjölskyldan sem við Begga vorum hjá var alveg æðislega fín. Við fengum alltaf brauð og te í morgunmat og sváfaum á satíni og bara allt gegt kósí. Þrátt fyrir takmarkaða ensku kunnáttu Olgu, mömmunnar og Philips(9), sonarins þá var Richard, pabbinn, bestur í enskunni og var gott að hafa a.m.k. einn enskumælandi þarna.
Það var rosalega skemmtilegt að fara á jólamarkaðinn í Frankfurt á sunnudagskveldið. Súkkulaði húðuð fersk jarðaber eru tær snilld og gómsæt. Brezel er líka organdi lostæti og það að geta keypt sér eins metra langan popppoka, með hunganshúðuðu poppi gefur lítið eftir í þeim efnum! En ég týndi vettlingnum mínum daginn eftir og var ég sár og grét í hljóði, þagði líka í 2 heilar klukkustundir. Nýtti þann tíma í að syrgja og sofa í rútunni á leið til Hahn. (þetta er persónulegt þagnarmet svona til gamans að geta)
Jæja jólapróf HÍ byrja á fimmtudag... þau byrja með því ægilega fagi Þjóðfélagsfræði. Þar á eftir kemur danskan og eftir helgi er stærfræði og man ég bara ekki meir... huuummmmmmmmmmm.
Jæja ætla að fara fá mér núðlur og skunda svo á létta æfingu og liggja í pottinum.
Auf Wiedersehen


0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim